Kóran, Hadith og Konur


The Israeli information center for HUMAN RIGHTS in the occupied territories

Já endilega skoðið þessa síðu.  Hún er frá mannúðarsamtökum í Ísrael sem taka saman tölur um mannfall þar.  Fjöldi ísraela og palestínumanna sem hafa fallið.  Þetta er bara sorglegt.  T.d.   885 palestínsk BÖRN á móti 3 ísraelskum börnum hafa fallið í öllum þessum átökum Frown  

Þetta eru bara staðreyndir.  

www.btselem.org/english/statistics/casualties.asp


Þessi gæi er bara fyndinn og frábær. Hann gerir út þessi myndbönd og þetta er bara eitt dæmið.


Munurinn á kk og kvk...Bara bráðfyndið! :)


Að börn þurfi að upplifa svona!!!! Æskan á að vera sakleysi!!


Kóraninn segir að virða skuli móður 3x á við föður,sæt börn að syngja.


Flott video...við erum jú öll mennsk!!!


Brúðkaup í Marokkó...eitthvað sem ég fékk ekki ;)


Heimildamynd um Jesú í Kóraninum...3 af 5


Sem betur fer

Já...sem betur fer eru ekki margir sem lesa þetta blogg.  Þeim myndi eflaust blöskra að ég tala hér fyrir Islam. Já...sumt fólk hangir inná netinu til að finna allt Islam til foráttu og þykjast vera meina öfgafulla múslima.  Þeir sitja við borðið sitt, með matardiskinn við hliðina á sér og kannski kaffið.  Verndaðir í samfélagi sem á að heita með trúfrelsi og fordómalaust. Svo situr það og spjallar á opnum vef hvað aðrir eru ömurlegir.  Hefur þetta fólk setið í húsi sem búið er að sprengja upp? átt ekki fyrir mat né getað gengið í skóla?   Ég auðvitað fordæmi öll illverki, hvaðan sem þau koma en svona einhliða umræður þoli ég ekki!   Kennslukonan nefndi bangsa Mohammed...hmm... big deal! Islam á að sýna þolinmæði gagnvart þeim sem ekki vita betur. Þetta er ekki stór hópur sem vill að hún verði líflátin en hann heyrist hæst!  og svona fólk eins og ég nefndi áðan, grípur þetta um leið.  Jafn mikil heimska eins og að óska einhverjum dauða!!!!  Aumingja kennslukonan vissi ekki betur...  Ef ég eignaðist dreng myndi ég aldrei nefna hann Mohammed...hvers vegna???  jú, hann gæti aldrei orðið spáðmaðurinn ... alveg eins og ég nefni ekki barnið mig Guð!!!  

Æ ég gæti svo sem alveg haldið áfram en ... nenni því bara ekki!! Nenni ekki að eyða orkunni minni á svona vitlaust fólk sem getur ekki haldið sínum skoðunum hjá sér!   

Ákveðinn einstaklingur hefur verið að koma með komment sem á að vera úr Kóraninum en þegar ég fletti því upp þá bara stóðst ekki það sem hann var að meina!!! skrítið??  hvað þýðingu notar hann?  æ nei...ég er hætt.......

 

verið góð

Masalama 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband